Stjórnarfundur 7.2 2016
Mættir: Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Undirbúningur fyrir Ársfund deildarinnar. Einnig fyrir febrúar sýningu. Garðheimar 13-14 febrúar raðað niður á dagana. Almennur undirbúningur fyrir árið, verkefni og viðburðir.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir
Stjórnarfundur 1.11 2015
Mættir: Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Farið yfir undirbúning nóvembersýningar og sýningarþjálfun. Jólaball og heiðrun verður haldið í Gæludýr þann 28. nóvember. Ákveðið að færa bingó yfir á næsta ár.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir
Stjórnarfundur 27.9 2015
Mættir: Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Farið yfir uppgjör á deildarsýningunni í apríl s.l. Farið yfir skipulag á félagsfundinum Hringborð ræktenda. Útreikningur stiga á stigahæstu hundum.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir
Stjórnarfundur 18.8 2015
Mættir: Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Undirbúningur fyrir septembersýningu og útvegun starfsmanna á sýningu. Undirbúningur fyrir félagsfundinn Hringborð ræktenda. Farið yfir síðustu augnskoðanir. Þáðum boð stjórnar HRFÍ að mæta á kynningarfund 14.10.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir
Stjórnarfundur 25.6 2015
Mættir: Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Stjórnin vinnur áfram í að gera Rakkalista fyrir deildina, félagsmenn geta svo óskað eftir að taka rakka af listanum óski þeir ekki eftir að hafa þá þar. Rætt um gildistíma hnéskeljavottorða.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir
Stjórnarfundur 28.4 2015
Mættir: Guðbjörg Jensdóttir, Daníel Örn Hinriksson, Anna Guðný Jónsdóttir, Kristín Þórmundsdóttir og Rósa Traustadóttir.
Ný stjórn skipti með sér verkum:
Formaður Daníel Örn Hinriksson
Gjaldkeri Anna Guðný Jónsdóttir
Ritari Rósa Traustadóttir
Meðstjórnendur Kristín Þórmundsdóttir og Guðbjörg Jensdóttir.
Stjórnin lagði línurnar fyrir næsta starfsár og útdeildi verkefnum. Fjárhagsstaða skoðuð og ákveðið að hafa haustbingó sem fjáröflun fyrir deildina. Settar dagssetningar fyrir göngur, félagsfundi og hvolpa-nýliðadag.
Fundinn ritaði Rósa Traustadóttir