6.3.2012
Mættir: Anna G., Ásta María Halldóra, Klara og Kristín.
Efni fundar:
- Fundur með HRFÍ v/PRA
- Fulltrúaráðsfundur
- Febrúarsýning félagsins, nýjir meistarar
- Kynninganefnd, minna á að skila dóti
- Garðheimar, ekki hægt að afboða með engum fyrirvara
- Fyrirlestur
- Aðalfundur
- Páskabingó
25.01.2012
Mættir: Anna G., Ásta María Halldóra og Kristín. Klara hafði boðað forföll vegna vinnu.
Efni fundar:
- Aðalfundur deildarinnar
- Fundargerðir afgreiddar
- Heiðrun á stigahæstu hundum
- Sýningaþjálfun
- Fundur með stjórn HRFÍ vegna PRA
Næsti fundur áætlaður: 06. mars 2012
22.11.2011
Mættar: Anna Guðný, Ásta María, Halldóra, Klara og Kristín
Efni fundar:
Fundargerðir - ókláraðar og ósamþykktar
Auglýsa jólaball deildarinnar
Farið yfir síðustu sýningu
Farið yfir niðustöður augnskoðunnar
Kynninganefnd smáhundadagar í Garðheimum
Heiðrun á stigahæstu hundum ársins
25.10.2011
Mættar: Anna Guðný, Ásta María, Halldóra, Klara og Kristín
Efni fundar:
Niðurstaða heilsufarsdags
Aukning á aðgerðum við hnéskeljalosi
Ákveðið viðmið fyrir rakkabeiðnir - Að samanlagt los foreldra sé ekki meira en 3.
Rakkabeiðni
Undirbúningur fyrir jólaball
Kynningabás á næstu sýningu
Heiðrun á stigahæstu hundum ársins í janúar
Sýningaþjálfun
Fjáröflun
Kynningarefni - Límmiðar og bæklingar
12.9.2011
Vinnufundur vegna nýliða - og heilsufarsdaga
Netfundir í sept
Heilsufarsdagur - Vottorðin kláruð, ákveðið að hafa heilsufarsdaginn með nýju fyrirkomulagi, fólk getur pantað tíma hjá Hönnu yfir viku tímabil.
Opin sýning - Opinni sýningu aflýst vegna afleitrar þátttöku.
22.8.2011
Vinnufundur með framkvæmdanefnd sýning - Anna Guðný fer fyrir hönd stjórnar.
22.8.2011
Mættar: Anna Guðný, Halldóra, Klara og Kristín
Efni fundar:
Deildarsýning 2012 - Afráðið að sækja ekki um sýningu en halda möguleikanum opnum fái einhver íslensku dómaranemanna réttindi á tegundina á árinu.
Starfmenn næstu sýningar HRFÍ
Sýningaþjálfun
Opin sýning ákveðin í okt 2011
Heilsufarsdagur ákveðinn í okt 2011
Nýliðadagur ákveðinn í september 2011.
Smáhundadagar í Garðheimum í sept, sent á kynninganefnd
Myndaganga í sept, deildin skaffar meðlæti með pylsum.
23.6.2011
Vinnufundur með kynninganefnd
6.6.2011
Mættar: Anna Guðný, Ásta María, Halldóra, Klara og Kristín
Efni fundar :
Skila inn deildarfréttum í Sám
Heilsufarsdagur í haust
Opin sýning 1 okt frá 3mán og uppúr
Nýliðadagur í haust
Deildarsýningu haustið 2012 frestað í bili
Sumarfrí 16júní - 22ágúst
Fundur með kynninganefnd
Næsti fundur ákveðinn 22 ágúst kl 17
5.5.2011
Mættar voru: Anna Guðný, Ásta María, Halldóra og Klara.
Anna Guðný ritaði fundinn í farveru Kristínar.
Efni fundar:
- Stefnumótunarkvöld undirbúið, verður haldið í Saga System Grensásvegi 3 frá 18-22. Deildin skaffar léttan kvöldverð. Lágmarksþátttaka 10 manns .
- Fyrirlestur með Sigríði Bílddal um umhverfisþjálfun hvolpa þann 26. maí nk.
- Bikaramál fyrir júnísýningu.
- Öldungabikarar
- Sýningaþjálfun fyrir júnísýningu
- Fulltrúaráðsfundur 4. maí, farið yfir helstu niðurstöður.
- Deildarsýning 2012
- Kynninganefnd, stjórn óskaði eftir kröftum 4 deildarmeðlima og hafa þær allar samþykkt að sitja í nefndinni.
- Fjáröflun
Næsti fundur ákveðin 6. Júní kl 17
___________
4.4.2011
Mættar voru: Anna Guðný, Ásta María, Halldóra, Klara og Kristín.
Efni fundar:
- Verkaskipting stjórnar:
Formaður: Halldóra
Ritari: Kristín
Gjaldkeri: Anna Guðný
Meðstjórnandi: Ásta María
Meðstjórnandi: Klara
- Skipan í kynninganefnd, skipaðar voru:
Berglind Magnúsdóttir
Edda Jensdóttir
Ólöf Karen Sveinsdóttir
Sigurbjörg Vignisdóttir
- Farið yfir starfsáætlun ársins:
Stefnumótunarfundur ákveðinn 19. Maí
Fræðslufundur ákveðinn í maí (26. Maí)
Fjáröflun rædd
Rætt um opna sýningu í haust
Jólaball í enda nóvember
Heiðrun stigahæstu hunda ársins 2011 í janúar 2012
Deildarsýning 2012, dagsetningar og dómarar.
Nýliðadagur
Sumarfrí stjórnar 16. júní til og með 17. ágúst
Næstu stjórnarfundir ákveðnir 9. maí og 6. júní.
Fundargerð aðalfundar Chichuachuadeildar HRFÍ 30. Mars kl. 20:00
Halldóra Reykdal Tryggvadóttir setti fund og kom með tillögu að fundarstjóra; Lilju Dóru Halldórsdóttur og ritara Heiðrúnu Guðmundsdóttur. Fundurinn samþykkti tilnefningarnar.
1. Fundarstjóri fór yfir fundarboðun og kvað löglega boðað til fundarins.
2. Skýrsla stjórnar. Daníel Örn Hinriksson flutti skýrslu stjórnar, sjá í fundargögnum. Mikið starf hefur verið unnið á árinu. Engar athugasemdir voru gerðar við skýrslu stjórnar og hún samþykkt.
3. Reikningar félagsins lagðir fram og kynntir, sjá í fundargögnum. Heildartekjur vorur 75.000, heildargjöld kr. 122.722, heildareignir kr. 552.584, engar skuldir. Tap af rekstri félagsins var kr. 47.255. Reikningar félagsins samþykktir.
4. Stjórnarkjör: Fimm frambjóðendur um fjögur sæti í stjórn. Framboð frá Halldóru Reykdal, óskar endurkjörs til formanns, Önnu Guðný sem óskar endurkjörs, Ástu Maríu sem er ný í framboði, Berglind sem er ný í framboði og Kristín Þórmundsdóttir sem sömuleiðis er ný í framboði.
5. Úrslit kosninga: Kjörgengi 21. Kosin til 2ja ára: Halldóra Reykdal, Anna Guðný og Kristín Þórmundsdóttir. Kosin til 1. Árs var Ásta María.
6. Önnur mál:
a. Anna Jóna ákvað að hætta eftir eitt ár. Vildi gefa öðrum í félaginu tækifæri, en hún sagði að það væri skemmtilegt að starfa í stjórn Chichuachua. Margir taki þátt í sýningum og margir nýjir . Hún óskaði nýju fólki velfarnaðar í starfi.
b. Starfsáætlun 2011-2012. Halldóra kynnti. Sjá í fundargögnum.
c. Bikara-vandræði. Dýrt að kaupa bikara fyrir hverja sýningu. Á að taka upp farandbikara? Hvaða lausn er best?
d. Halldóra hefur áhyggjur af nýliðun í félaginu. Allir ræktendur eiga að setja netföng hvolpakaupenda á póstlista. Bæklingar hjá deildinni eru til ráðstöfunar fyrir ræktendur.
e. Heimasíðan. Gotsíðan tekin út. Fundargerðir komnar inn. Nýtt fólk getur aðstoðað við að setja efni á heimasíðuna. Ræktendur verða setja sig á síðuna.
f. Augnskoðun. Búið að sækja um lengingu vottorða í 19. Mánuði. Rætt við dýralækna, en þeir vilja áfram 13 mánaða næstu 5 árin.
g. Hnéskeljalos - lítið verið ræktað undan hundum með hnéskeljalos. Finnland hefur lítið gert í því að minnka hnéskeljalos, en þeir eru duglegir við að fylgjast með því og fá ennþá jafnmikið af hundum með los. Óútskýranlegt að fá hvolpa með los undan fríum foreldrum. Ekki má rækta undan hundum með 2 í hnéskeljalos í Danmörku. Patella - nýjar reglur í Danmörku.
7. Fund slitið: Lilja Dóra sleit fundi og þakkaði fyrir góðan fund.