Fyrir sýningu

Fyrir sýningu:

  • Kaupa sýningartaum sem hentar hundinum.  Ekki er verra ef taumurinn er í sama lit og hundurinn; tjúar ekki sýndir með rauðum, aðeins York-ar. 
  • Mikilvægt er að umhvefisþjálfa hundinn vel fyrir sýningar og almennt.  Gott getur verið að fara með hundinn á fjölfarna staði þar sem hundar eru leyfðir og láta hann umgangast menn og dýr.  Hafa hundinn vanann mismunandi aðstæðum.
  •  Hundurinn þarf að vera í góðu líkamlegu formi miðað við sinn aldur; holdafar o.s.frv. 
  • Mikilvægt er að hundurinn sé vanur því að tennur hans séu skoðaðar og kjörið að fá gesti til að kíkja upp í hundinn.  Sömuleiðis er það nauðsynlegt að karlhundar þoli að komið sé við eistu þeirra og almennt að hundar þoli að þeir séu þukklaðir.  Þetta þarf dómari að geta athugað í dómhring.  Alltaf að muna að hrósa þegar hundurinn er þjálfaður og er að sýna árangur.  Hætta þegar vel gengur og gera aftur eftir pásu.  Chihuahuahundar eru sýndir fríhendis ef svo má segja. Þegar hundurinn er ekki á hreyfingu á hann að geta sýnt sínar bestu hliðar með því að standa í sínar fjórar fætur án stuðnings, þannig að önnur hvor hliðin snúi að dómara (og í augnsambandi við sýnanda.  Augnsamband má þjálfa á ýmsa vegu.) 
  • Chihuahua eru sýndir á borði.  Því er mikilvægt að þeir séu orðnir vanir því.  Ólíkt því sem gerist á gólfi er hundinum stillt upp á borði; ef þarf.  Mikilvægt er að hundurinn þoli það að dómari þukkli hann og fái að skoða tennur.  Þetta má þjálfa hvar sem er.  Ef ekki eru til sýningarborð á heimilinu, að nota þá borðstofuborð en hafa eitthvað stamt undirlag.  Mikilvægt er að þessi þáttur sé vel þjálfaður fyrir sýningu!  Við þjálfun á borði má hundurinn aldrei verða fyrir neikvæðri reynslu; það er mikilvægt að alltaf sé gaman þegar farið er á borð.
  • Snyrting fyrir sýningu er mikilvæg.  Misjafnt er hvenær heppilegast er að baða chihuahua; fer eftir feldgerð.  Neglur skulu hafa verið klipptar minnst fjórum dögum fyrir sýningu og ef tannsteinn er á tönnum hundsins skal hann fjarlægður.  Ef sýnandi kýs að fjarlægja veiðihár dýrsins skal hann fá vanann aðila í það og gera það minnst tveim dögum fyrir sýningu. 
  • Sýnandi skal vera sjálfum sér og tegundinni til sóma á sýningasvæði og í hring.  Á það við um hátterni og klæðnað!
  • Mæta í sýningaþjálfun og vinna með hundinum milli tíma!!!!

 


Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.