Kæru sýnendur
Kæru sýnendur,
hér koma nokkrir punktar sem gott er að hafa til viðmiðunar fyrir sýningar
en listinn er þó alls ekki tæmandi.
Snyrting
Ø Hjá þeim hundum sem
hætt er við augnleka, þarf að byrja að hreinsa daglega undir augum a.m.k. 2
vikum fyrir sýningu með þar til gerðum efnum, t.d. Kleen Face
Ø Gott að vera búin að
klippa klær a.m.k viku f. sýningu.
Ø Feldmikla hunda er
best að baða daginn fyrir sýningu en aðra má baða aðeins seinna ef það hentar
betur. (Panta þarf tímalega ef á að fara með hundinn á snyrtistofu).
Ø Gott er að greiða
feldinn áður en komið er á sýningarsvæðið.
Næring
Ø Sumir gefa hundunum
sínum ekki að borða áður en komið er með þá á sýningu, hafa kvöldmatinn t.d. í
fyrra fallinu daginn fyrir sýningu. Það er gert til að draga úr áhættunni á
slysum á sýningarsvæðinu og inni í hringnum og til að hafa þá sem áhugasamasta
um það nammi sem við bjóðum upp á. Þetta á ekki við um hvolpa.
Ø Vatn þurfa þeir að
sjálfsögðu alltaf að hafa og takið með vatnsdall og vatn á sýninguna.
Snyrtilegur klæðnaður sem manni líður vel í, með eftirfarandi viðmiðunum
Ø Helst ekki föt sem
eru samlit hundinum sem verið er að sýna.
Ø Ekki víðar flaxandi
buxur.
Ø Ekki stutt eða víð
flaxandi pils.
Ø Sléttbotna eða
lághæla skór, alls ekki grófir.
Ø Hundurinn er sýndur
með sérstökum sýningartaumi sem fæst í flestum dýrabúðum, passið að fá fínlegan
taum.
Áður en í hring er komið
Ø Skrá hundinn inn
klukkutíma fyrir áætlaðan sýningartíma. Komið hefur fyrir að dómarar séu á
undan áætlun. Geyma hundinn bara úti í bíl á meðan.
Ø Hreyfa hundinn vel og
leyfa honum að losa sig utan dyra, hreinsa að sjálfsögðu upp eftir hundinn
Ø Fara snemma inn með
hunda sem þurfa langan tíma til að taka út svæðið, áður en þeir eru tilbúnir
til að vinna með eiganda/sýnanda sínum
Ø Fara eins seint og
hægt er inn með hunda sem eru fljótir að láta sér leiðast aðstæður, muna að
fylgjast vel með hvenær röðin kemur að ykkar tegund og hvenær byrjað er að raða
upp.
Ø Hringverðir raða
sýnendum upp eftir númerum sem fást við skráningu, best er að halda röðinni,
þar til hringstjóri gefur bendingu hvenær sýnandi á að fara inn í hringinn og
dómari gefur skipun um hvað gera skal. Hringstjóri aðstoðar sýnendur við að
skilja dómara, ef þörf er á.
Í hringnum
Ø Vera með góða skapið
og æðruleysi.
Ø Nammi og/dót til að
vekja áhuga hundsins (nammi sem festist ekki í tönnum hundsins og hann er
fljótur að borða).
Ø Skítapoka til að
þrífa upp óhöpp sem gera ekki boð á undan sér.
Ø Passa að fara ekki á
milli hunds og dómara.
Ø Reyna að stilla hundi
ávallt þannig upp að dómari sjá vel hundinn og þurfi ekki að færa sig til að
dæma hundinn.
Ø Nýtið ykkur eðlislæga
forvitni Chihuahua, þeir þurfa ekki sífellt að vera að horfa á sýnanda sinn.
Passa bara að þeir gangi reistir og séu ekki með nefið niðri.
Ø Chihuahua á að stilla
sér upp sjálfur, þ.e. sýnandi fer ekki niður og stillir honum upp, heldur lætur
hundinn standa frjálsan á gólfinu á meðan dómari dæmir. Þjálfa þarf hundinn í
því að standa "fallega" og reistan fyrir framan dómarann. (Ef hundur vill ekki
standa fallega, t.d. setur skottið niður eða krippu á bakið, verður sýnandi að
aðstoða hann með því að stilla honum upp).
Ø Misjafnt er hvort byrjað er á því að ganga einn hring og síðan farið upp á borð, þegar inn í hring er komið.
Ø Oftast eftir að skoðun hefur
farið fram á borðinu, er hundur látinn fara fram og til baka og/eða þríhyrning,
síðan látinn stilla sér upp fyrir framan dómaraborðið á meðan dómari lætur
dómritara rita dóm hundsins.
Ø Síðan afhendir hringstjóri þann
borða sem dómari dæmir hundinum, rautt fyrir I. einkunn, blátt fyrir II.
einkunn og gult fyrir III. einkunn. Ef hundur fær II. eða III. einkunn hefur
hann lokið keppni og má yfirgefa hringinn. Þeir aftur á móti sem fá I. einkunn,
bíða í hringnum á meðan dómari dæmir aðra hunda í sama flokki.
Ø Hringverðir segja þeim svo til
sem hafa fengið framhaldseinkunn og eiga að mæta aftur í hring.
Ø ALDREI SKAMMA HUND HARKALEGA.
Allt
starfsfólk sýningar er tilbúið til að aðstoða sýnendur og ekki hika við að
leita til þeirra. Dómara má aftur á móti ekki ræða við, að öðru leyti en því að
svara spurningum þeirra.
Dómarar
gætu spurt um aldur hundsins. Að vísu getur verið gott að benda dómara á ef tík
er á lóðaríi, það er sjálfsögð kurteisi að vara þá við ef tíkin er að blæða.
Aðeins
sýnendur mega vera þeim megin sem hundar fara inn í hringinn, aðrir sem vilja
fylgja hundinum verða að vera á áhorfendapallinum.
Þeir
aftur á móti sem sýna fleiri en einn hund, þurfa að hafa aðstoðarmanneskju með
sér og gera ráðstafanir ef hundar lenda saman í hring.
Reynum
að hafa hugann við hundinn okkar, pössum að aðrir hundar séu ekki að ónáða hann
og að hann sé ekki að ónáða aðra hunda eða skíta út svæðið. Njótum þess að eiga
þessa stund með hundinum okkar, hann hefur gaman af því að vinna með okkur þegar
við erum jákvæð.
Og munum að við eigum öll
besta og flottasta hundinn fyrir okkur, óháð því hvar dómari telur hann vera
samkvæmt standard.
Þeir sem eru að sýna
hvolpa, takið þessu sem æfingu og hlæjið að því sem út af ber. Þið eruð með
litla fjörkálfa sem geta tekið upp á því að neita að ganga og hvað með það...
Dómarar hafa almennt mikla þolinmæði fyrir hvolpum og gera litlar kröfur til
þeirra, flestir hafa húmor fyrir ærslagangi hvolpa og vilja frekar sjá glaða
hvolpa sem ekki gera allt eins og á að gera en að sjá óörugga hvolpa sem standa
og labba eins og sýnendur vilja.
Af
hverju að taka þátt í sýningum?
Fyrir
utan að njóta þess að vinna verkefni með hundinum sínum, þá eru sýningar
nauðsynlegar fyrir þá sem hafa hug á að rækta. Aldrei ætti að rækta undan dýrum
sem ekki hafa fengið góða dóma eftir hvolpaflokk frá fleirum en einum dómara.
Hvolpasýningar eru æfingar fyrir alvöru sýningar.
Í ræktun
þarf ætíð að hugsa út frá heildarmyndinni og reyna þannig að stuðla að betri
stofni tegundarinnar.
Einnig
ætti aldrei að rækta undan dýrum sem eru með afgerandi galla í t.d. biti,
geðslagi (hræddir/grimmir/taugaveiklaðir) svo dæmi séu tekin.
Á
sýningum HRFÍ eru aðeins viðurkenndir dómarar af FCI og því getum við treyst á
að fagmennska sé höfð að leiðarljósi.
Aldrei
para dýrin ykkar við dýr sem ekki eru með viðurkenndar ættbækur af FCI og munum
að HRFÍ er eina félagið á Íslandi sem gefur út viðkenndar ættbækur af FCI. Það
er að sama skapi jafn alvarlegt að para
við dýr sem hafa enga ættbók eða eru af annarri tegund.
Ef við
stöndum saman í ræktun, þá eigum við meiri möguleika á að rækta upp heilbrigðan
stofn sem við getum verð stolt af gagnvart öðrum Chihuahua ræktendum í
heiminum.
Ofangreindar
upplýsingar eru teknar saman af undirritaðri.
Með þökk
fyrir frábæra samvinnu og sameiginlegan áhuga á þessari einstöku tegund,
Halldóra
Reykdal
Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.
