• Frettir
  • Deildin
    • Um deildina >
      • Tilgangur ræktunardeilda
      • Stjórn
    • Fundargerðir >
      • 2021-22
      • 2020-21
      • 2019-20
      • 2018-19
      • 2017-18
      • 2016-17
      • 2015-16
      • 2014-2015
      • 2012-2013
      • 2011-2012
      • 2010-2011
      • 2009-2010
    • Pistlar >
      • Sjálfboðastörf
      • Bikarar og önnur verðlaun
    • Greinar >
      • Svo þig langar að rækta?
      • Móðurafaáhrifin
      • Inn-ræktun, línu-ræktun, óskyld-ræktun ?
      • Hnéskeljalos
      • Stress
      • Innkall
      • Forðastu hundsbit
      • Leiktu við hundinn þinn
    • Facebook
    • Póstlisti
    • Hafa samband
  • Raektun
    • Ræktendur
    • Ræktunarkröfur
    • Pörunarbeiðnir
    • Pörunarsamningur
    • Greinar >
      • Svo þig langar að rækta?
      • Móðurafaáhrifin
      • Inn-ræktun, línu-ræktun, óskyld-ræktun ?
  • Heilsufar
    • Hnéskeljalos
  • Syningar
    • Borðar á sýningum
    • Útskýring einkunna
    • Úrslit sýninga >
      • 2022 >
        • Alþj. 5.mars
      • 2021 >
        • Winter Wonderland 27.11
        • Alþjóðleg 22.8
        • NKU og RW 21. ág
      • 2020 >
        • 2020 Norðurljósa Alþ. 29.2.20
      • 2019 >
        • 2019 Norðuljósa Alþj 23.2.19
        • 2019 NKU Norðurlandas 8. juní
        • 2019 Alþj. sýning 9. júni
        • 2019 NKU Norðurlandas 24.ág
        • 2019 Alþj. sýning 25. ág
        • 2019 Norðurljósa 23.11
      • 2018 >
        • 2018 Nóv Winter Wond
        • 2018 Alþj. 26.08.18
        • 2018 NKU 25.08.18
        • 2018 Alþj. 10.06.18
        • 2018 RW og NKU 9.6.18
        • 2018 mars Norðurljósasýning
      • 2017 >
        • 2017 nóvember
        • 2017 september
        • 2017 Alþjóðleg sýning
        • 2017 RW
        • Deildarsýning apríl 2017
        • 2017 mars
      • 2016 >
        • 2016 febrúar
        • 2016 RW
        • 2016 Alþj. Sýning
        • 2016 september
        • 2016 nóvember
      • 2015 >
        • 2015 nóvember
        • 2015 september
        • 2015 júlí tvöföld
        • 2015 maí
        • Deildarsýning 18.4
        • 2015 febrúar
      • 2014 >
        • 2014 nóvember
        • 2014 september
        • 2014 júní tvöföld sýning
        • 2014 febrúar
      • 2013 >
        • 2013 nóvember
        • 2013 september
        • 2013 maí
        • 2013 febrúar
      • 2012 >
        • 2012 nóvember
        • 2012 ágúst
        • 2012 júní
        • 2012 febrúar
      • 2011 >
        • 2011 nóvember
        • 2011 ágúst
        • 2011 júní
        • 2011 mars (deildarsýning)
        • 2011 febrúar
      • 2010 >
        • 2010 nóvember
        • 2010 ágúst
        • 2010 júní
        • 2010 mars (deildarsýning)
        • 2010 febrúar
      • 2009 >
        • 2009 október
        • 2009 ágúst (dagur 1)
        • 2009 ágúst (dagur 2)
        • 2009 júní
        • 2009 mars
      • 2008 >
        • 2008 október
        • 2008 júní
        • 2008 mars
        • 2008 janúar (deildarsýning)
      • BOB & BOS '95-08
    • Stigahæstu hundar ársins >
      • 2022
      • 2021
      • 2019
      • 2018
      • 2017
      • 2016
      • 2015
      • 2014
      • 2013
      • 2019
      • 2012
      • 2011
      • 2010
      • 2009
      • 2008
      • Útreikningar stiga
    • Myndir >
      • Deildarsýning 19. mars 2011
      • Deildarsýning 6. mars 2010
      • Blandaðar sýningar
  • Meistarar
    • Alþjóðlegir meistarar C.I.B.
    • Íslenskir meistarar ISCh
    • Öldungameistarar ISVetCh
    • Ungliðameistarar ISJCh
    • NLM meistarar
  • Tegundin
    • Almennt um Chihuahua
    • FCI staðallinn á íslensku
    • FCI staðallinn á ensku
    • Ræktunarkröfur
    • Greinar >
      • Svo þig langar að rækta?
      • Móðurafaáhrifin
      • Inn-ræktun, línu-ræktun, óskyld-ræktun ?
      • Hnéskeljalos
      • Stress
      • Innkall
      • Forðastu hundsbit
      • Leiktu við hundinn þinn
  • Ymislegt
    • Myndir >
      • Af sýningum >
        • Deildarsýning 2017
        • Deildarsýning 19. mars 2011
        • Deildarsýning 6. mars 2010
        • Blandaðar sýningar
      • Úr göngum
      • Innsendar
    • Tenglar
    • Námskeið og vinna
    • Greinar >
      • Svo þig langar að rækta?
      • Móðurafaáhrifin
      • Inn-ræktun, línu-ræktun, óskyld-ræktun ?
      • Hnéskeljalos
      • Stress
      • Innkall
      • Forðastu hundsbit
      • Leiktu við hundinn þinn
    • Spurt & svarað
  • English
    • About the club
    • Rules and Regulations
    • Contact us
    • Vocabulary

Leiktu við hundinn þinn

Höf. Klara Símonardóttir, chihuahua.is

Allir hundar þurfa andlega örvun en sumir meira en aðrir og það er gott og gaman að leggja fyrir hundana þrautir eða leiki hvort sem er inni eða úti og höfum við því tekið saman nokkrar hugmyndir.

Úti

Steinar

Stóra steina má nota til þess að auka samstarfsvilja hjá hundinum og sjálfsöryggi hans ásamt því að brjóta aðeins upp göngutúrinn. Til þess að fá hundinn til að fara upp á steina þarf að byrja á steinum sem hann ræður auðveldlega við, hvetja hann jafnvel upp með bita en ekki má draga hann upp á steininn. Þegar hann er svo er kominn upp fær hann hrós og er svo hvattur aftur niður. Ef þetta gengur vel má svo velja stærri og stærri steina.

Sikk-sakk

Nota má hina ýmsu staura til þess að æfa sikk-sakk en að sjálfsögðu þarf að gæta fyllsta öryggis ef æft er í nágrenni við umferð. Þegar sikk-sakk er æft er hundurinn fenginn til að sikk-sakka á milli súlna eða staura, en hann þarf að vera í augnsambandi og eigandinn þarf í fyrstu að leiða hann á milli súlnanna, síðar getur hundurinn jafnvel farið sjálfur á milli eftir skipun.

Hopp

Gaman er að fá hundinn til þess að stökkva yfir hinar ýmsu hindranir en eins og áður er best að byrja á þeim lágu og færa sig síðan ofar ef allt gengur að óskum. Stórir, langt komnir hundar geta stokkið yfir grindverk eða bekki en þeir smærri upp á og yfir kanta. Ekki þykir heppilegt að láta hvolpa stökkva mikið vegna álags á bein og liði í mótun.

Í garðinum heima

Stundum hefur hundurinn meiri orku heldur en eigandinn og til þess að hundurinn þurfi ekki að fara á mis við skemmtun og andlega örvun er mjög vinsælt að taka nammi eða hluta af fóðurskammti hundsins og dreifa um garðinn og fylgjast svo með því hve duglegur hundurinn er að þefa uppi hverja einustu örðu. Gott er að leyfa hundinum að vinna þessa þraut alveg sjálfur svo að hann nýti hið öfluga þefskyn sitt eins vel og hægt er.

Inni

Ýmislegt má gera til þess að hafa ofan af fyrir hundinum innandyra en við skulum þó ekki gleyma því að allir hundar þurfa sína hvíld og þá sérstaklega hvolpar.

Heima má gera alveg eins og í garðinum, þ.e. að fela eða dreifa hluta af matarskammtinum svo að hundurinn þurfi að eyða smávegis tíma í verkið. Einnig má setja einstaka nammibita á valda staði og sjá hvort hundurinn finnur þá.

Fyrir þá sem eru með mikla nagþörf eða eyðileggingarhvöt duga ekkert nema harðgerð leikföng sem þola álag en margir hafa brugðið á það ráð að setja mat eða nammi inn í flösku og sjá hve lengi hundurinn er að ná gottinu út. Flestir byrja með opna flösku og sumir hundar uppgötva strax góða aðferð við að ná namminu og því gott að loka flöskunni hjá þeim en aðrir eru aðeins lengur að finna réttu aðferðina við verkið.

Nagaðu

Hundar hafa mismikla nagþörf og geta hundar af sömu tegund verið það ólíkir að einn nagar aðeins beinin sín á meðan annar nagar óhikað múrhúð af veggjum, parketlista, húsgögn og fatnað en þá eru góð ráð dýr. Oftast þarf að fá hundinum önnur verk og hafa hann undir stöðugu eftirliti þar til þetta skeið gengur yfir.

Vinsælt nagdót er gott reipi í hæfilegri stærð fyrir hundinn og til þess að gera þetta leyfða leikfang áhugaverðara en nýju skóna er gott að nudda góðan skammt af hnetusmjöri inn í reipið sem verður þá að hinu mesta lostæti. Einnig hefur reynst vel með hvolpa að gefa þeim "íspinna" en þá er hreinni jógurt eða ab-mjólk hrært við banana eða hnetusmjör og fryst í klakaformi eða bollum og hundunum gefið til þess að kæla viðkvæma góma í tanntöku.

Prófaðu

Hægt er að nota húsgögnin á heimilinu í ýmsa leiki, t.d. má binda sippuband utan um stólfót og borð og fá hundinn til að hoppa yfir eða hreinlega reyna að kenna honum að sippa eða nota stólfæturna í sikk-sakk æfingar (ef hundurinn er nógu lítill undir stólana). Einnig er hægt að kenna þeim að hoppa yfir pakka af morgunkorni eða stólana, allt eftir stærð.

Það mikilvægasta er, hvort sem við ætlum að vinna með hundinn eða að leika við hann, að byrja engar æfingar í vondu skapi, þá er betra að sleppa því þar sem alltaf næst betri árangur ef bæði hundur og eigandi hafa gaman af því að vera saman.

Powered by Create your own unique website with customizable templates.