26.04.2010 15:44

Kynning á hundafimi

Íþróttadeild HRFÍ mun þriðjudaginn 4. maí kl 19 vera með prufutíma í hundafimi fyrir smáhunda. Í tímanum verður hundafimin kynnt og hundi og eiganda gefst kostur á að prófa tækin. Kynningin fer fram í Reiðhöll Gusts í Kópavogi.

Hundafimi er skemmtilegt sport sem reynir á samspil eiganda (eða stjórnanda) og hunds og hentar hundum af öllum stærðum og eigendum á öllum aldri.
ATH hundurinn þarf að vera fullbólusettur og að hafa náð 1 árs aldri.

Tíminn kostar 700 kr og greiðist við komu en til þess að sjá hversu marga þjálfara þarf í tímann er skráningar krafist. Skráning fer fram á netfangi deildarinnar hrfichihuahua@gmail.com


Hér fyrir neðan má sjá lista af vef íþróttadeildar yfir það sem gott er að hafa með í hundafimi

  • Léttan taum sem hundurinn getur auðveldlega dregið á eftir sér - Keðjutaumar og Flexitaumar eru ekki heppilegir
  • Stuttan taum (15-20 cm á lengd) sem getur hangið í ólinni án þess að hundurinn stígi á hann
  • Venjulega hálsól, leður eða nælon. Keðjur eru ekki ráðlegar þar sem að það getur meitt hundinn ef hann lendir í því að flækja tauminn í tækjunum.
  • Dót - bolta, reipi eða hvað annað sem hundurinn hefur gaman af.
  • Nammi - pylsur, harðfisk eða hvað annað sem hundinum finnst gott
  • Vatnsdall - hundurinn verður oft þyrstur á æfingum, sérstaklega þegar hann fær að hlaupa mikið
  • Skítapoka
  • Svangan hund - ef hundurinn er ekki búinn að fá að borða áður en hann fer á æfingu hefur hann meiri ástæðu til að leggja sig betur fram fyrir nammið og er því duglegri á æfingunni
  • En fyrst og fremst góða skapið !


Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.