18.03.2010 01:57

Páskabingó! mið 24. mars

Páskabingóið, MIÐ 24 mars kl 18

Páskabingó deildarinnar verður haldið nk miðvikudag 24. mars kl 18:00 í Gerðubergi (Salur A)
Við byrjum að spila kl 18:15 svo gott er að mæta aðeins fyrr, endilega mætið með fjölskyldur og vini. Kaffihúsið í Gerðubergi verður svo opnað fyrir okkur í hléi í kringum 19:30

Verð per spjald er 200kr stk, en 3 spjöld eru á 500kr. Ath ekki er tekið við kortum og skiptimynt er af skornum skammti.

Vinningarnir verða ekki síður veglegir en í fyrra en ef einhverjir hafa áhuga á að bæta við vinningum þarf að senda upplýsingar um slíkt til Klöru, klara.simonardottir@gmail.com fyrir kl 15 á miðvikudeginum.

Vonumst til að sjá sem flesta mæta

Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.