20.08.2009 00:24
Árshátíð HRFÍ
Okkar ástkæra Hundaræktarfélag
Íslands fagnar 40 ára stórafmæli um þessar mundir og af því tilefni
verður efnt til árshátíðar laugardaginn 29. ágúst nk. í
Þróttarsalnum við Engjaveg 7 í Laugardalnum. Þangað munu félagsmenn
HRFÍ sem og annað hundaáhugafólk mæta í sínu fínasta pússi og fagna
stórafmælinu saman eins og þeim einum er lagið!
Miðaverði er stillt í algjört hóf og kostar litlar 4000 kr. (matur og dansleikur). Húsið opnar kl. 19:30 og hefst borðhald kl. 20.00. Söddum en tjúttþyrstum gestum gefst tækifæri á að koma seinna um kvöldið og kostar þá 1000 kr. inn sem greiddar eru við inngang. Húsið opnar kl. 23:00 fyrir söddu gestina. Aldurstakmark gesta er 18 ára en 16-17 ára eru velkomnir í fylgd með fullorðnum. Miðasala hefst miðvikudaginn 12. ágúst.
Dregið verður í veglegu happdrætti og er einn miði innifalinn í miðaverðinu. Að sjálfsögðu gefst fólki svo kostur á að freista gæfunnar enn frekar og kaupa fleiri happdrættismiða á kostakjörum á staðnum.
Boðið verður upp á dýrindis hlaðborð með alls kyns girnilegum kræsingum. Árshátíðargestum er svo frjálst að taka með sér drykkjarföng að eigin vali.
Diskaþeytirinn Dj Danni "the Dog" Diskó mun sjá um að halda uppi fjörinu fram á rauða nótt en hann er þekktur fyrir að fá alla út á dansgólfið með sinni alkunnu snilld!
Okkar eini sanni Daníel Hinriksson, betur þekktur sem Danni, mun sjá um veislustjórn en margir muna eflaust eftir honum í gervi Danadrottningar hér um árið!
Miðasala fer fram á skrifstofu HRFÍ og hjá skemmtinefnd (á afmælissýningunum líka) og lýkur sunnudaginn 23. ágúst.
Miðasala verður í höndum eftirfarandi aðila:
Auður Sif s: 698 7142
Ásta María s: 692 8411
Berglind s: 698 6689
Ragga s: 865 1945
Hægt er að greiða fyrir miðana á marga vegu þannig að allir ættu að geta fundið greiðsluhátt við sitt hæfi.
- Hringja á skrifstofu HRFÍ á opnunartíma, greiða með símgreiðslu og fá miðann afhentann á skrifstofu eða hjá söluaðilum.
- Leggja inn á reikning HRFÍ 515-26-707729 kt. 680481-0249 (ekki gleyma að senda tölvupóst á arshatid@hrfi.is og skrifa "árshátíð" í skýringu) og fá miðann afhentan á skrifstofu HRFÍ eða hjá söluaðilum.
- Koma við á skrifstofu HRFÍ, greiða á staðnum og fá miðann afhentan
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Afmæliskveðjur;
Árshátíðarnefnd

Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.