Fréttir

2.6.2009

Minnum á póstlistann

Minnum á póstlista deildarinnar
skráning á hrfichihuahua@gmail.com

Nú höfum við opnað fyrir póstlista Chihuahuadeildar HRFÍ og hvetjum alla til þess að skrá sig á listann til þess að fá fréttir af starfi deildarinnar, göngutilkynningar, fundarboð, tilkynningar varðandi sýningar, ræktun og heilsufar.

Til þess að gerast meðlimur á listanum þarf aðeins að senda póst á hrfichihuahua@gmail.com með þínu nafni, ættbókarnúmeri (ekki nauðsyn) og nafni hundsins samkvæmt ættbók ef við á en þeir sem ekki eiga chihuahua en eru samt félagar í HRFÍ gefa aðeins upp fullt nafn.
Til þess að skrá sig af póstlistanum sendið póst á sama netfang.

Skrifað 2.6.2009 kl. 23:39 af

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu


Allur réttur áskilinn © 2006 - 2010 Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.