11.03.2009 22:37
Prufutími í hundafimi 22 mars
Prufutími í hundafimi, sunnudaginn 22.mars klukkan 17-18 í reiðhöll Gusts.
Það sem þarf að hafa með er:
Léttan taum sem hundurinn getur auðveldlega dregið á eftir sér - Keðjutaumar og Flexitaumar eru ekki heppilegir
Stuttan taum (15-20 cm á lengd) sem getur hangið í ólinni án þess að hundurinn stígi á hann
Venjulega hálsól, leður eða nælon. Keðjur eru ekki ráðlegar þar sem að það getur meitt hundinn ef hann lendir í því að flækja tauminn í tækjunum.
Dót - bolta, reipi eða hvað annað sem hundurinn hefur gaman af.
Nammi - pylsur, lifrapylsu eða hvað annað sem hundinum finnst gott
Vatnsdall - hundurinn verður oft þyrstur á æfingum, sérstaklega þegar hann fær að hlaupa mikið
Skítapoka
Svangan hund - ef hundurinn er ekki búinn að fá að borða áður en hann fer á æfingu hefur hann meiri ástæðu til að leggja sig betur fram fyrir nammið og er því duglegri á æfingunni
En fyrst og fremst góða skapið
Þetta mun kosta 500 kr á mann.
Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.
