20.01.2012 13:29
Heiðrun stigahæstu Chihuahua árið 2011, taka tvö!
Heiðrun stigahæstu Chihuahua árið 2011, taka tvö!
Kæru félagsmenn, stjórn barst hvatning frá félagsmanni vegna frestunar á heiðrun stigahæsta Chihuahua 2011. Í bréfinu kom fram að hann teldi félagsmenn hafa áhuga á að mæta á slíkan viðburð en setti kostnað fyrir sig. Stjórn gladdist mikið við þessa hvatningu og þær upplýsingar að félagsmenn hefði í raun áhuga á að mæta á uppákomur deildarinnar.
Heiðrun stigahæstu Chihuahua ársins 2011 verður föstudaginn 27. janúar 2012 kl. 20:00 í húsi SAGAsystem að Grensásvegi 3, 108 Reykjavík.
Félagsmenn koma með partýveitingar á sameiginlegt borð, t.d. snakk, ídýfur, salöt, osta, grænmeti, o.fl. ásamt eigin drykkjarveigum. Stjórn sér um glös, diska og servíettur.
Húsnæðið er frítt en í staðinn verðum við að skila því hreinu og óskum við eftir fólki til að aðstoða okkur við þrif í lok kvölds eða daginn eftir. Ábyrgir félagsmenn deilið kröftum ykkar, svo svona uppákomur verði framkvæmanlegar.
Skráning fer fram á hrfichihuahua@gmail.com í síðasta lagi miðvikudaginn 25. janúar.
Sýnið nú félagsandann og samgleðjist eigendum stigahæstu Chihuahua árið 2011.
Stjórn Chihuahuadeildar HRFÍ
Allur réttur áskilinn © Afritun á því efni sem finnst á vefsvæði Chihuahuadeildar HRFÍ er óheimil nema með leyfi eigenda.
